Japanskur kjúklingaréttur

Birtist í Húsfreyjunni 1tbl 2010

syndsamlega gott...

syndsamlega gott...

fyrir 4-6

  • 4 kjúklingabringur
  • 1dl sweet hot chilli sósa

Skera bringur í ræmur og steikja í vel heitri feiti. Hellið sósunni yfir og látið malla í 3-5 mín.

Sósa:

  • 1/2 bolli olía
  • 1/4 bolli balsamic edik
  • 2 msk hrásykur
  • 2 msk sojasósa

Soðið saman í ca 1 mín. kælt og hrært í á meðan svo að sósan skiljist ekki.

Núðlublanda:

  • 1 poki instant núðlur (þessar fyrir “fátæka námsmanninn” )
  • 4 msk möndluflögur
  • 2 msk sesamfræ

Myljið núðlurnar og ristið á þurri pönnu. Bætið möndlunum og sesam fræjunum við og ristið áfram eða þar til allt er orðið ljósbrúnt, kælið.

Salatblanda:

  • 1poki salat, gott að hafa blandað eða amk e-ð bragðsterkt í bland
  • 10 litlir tómatar eða 4 stórir (má sleppa)
  • 1 mangó (eða ananas eða epli)
  • 1 rauðlaukur

Salatið skolað vel og sett í stóra skál/fat. Laukur og mangó (ananas/epli og stórir tómatar ef notað) og blandið vel saman við salatið ásamt litlu tómötunum.
Bætið hluta af núðlublöndunni og sósunni yfir. Að lokum volgum kjúklingabitum ofan á.

Borið fram með hvítlauksbrauði og afganginum af núðlublöndunni & sósunni.

This entry was posted in auðvelt, án mjólkurvara, hollusta, Kjúklingur and tagged , , , , , , , , , , , , , , . Bookmark the permalink.

One Response to Japanskur kjúklingaréttur

  1. Ása LBG says:

    geggjað góður – búin að stela uppskriftinni )

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

You may use these HTML tags and attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>