áætlað á 2
- 400gr fiskflök, án roðs&beina
- 2 msk hveiti
- 1 tsk salt
- 1/2 tsk pipar
- 2 tsk karrí
- 2 egg
- 1 vænn blaðlaukur
- steinselja
Fiskurinn skorinn í bita. Hveiti, karrí, pipar og salti blandað saman í skál og fiskinum velt upp úr blöndunni. Hann síðan léttsteiktur á pönnu og raðað í eldfastfat.
Eggin eru harðsoðin.
Blaðlaukurinn saxaður smátt og mýktur á pönnunni. Harðsoðnu eggjunum og blaðlauknum blandað saman og sett yfir fiskinn.
Bakað við ca 180°c í 10 mín.
Gott er að strá smá ferskri steinselju yfir áður en þetta er borið fram.
Borið fram með hrísgrjónum.
pæling:
Spurning um að prufa að bæta papríku út í blaðlauks/eggja blönduna… myndi allavegana bæta litadýrðina!
Grunnurinn fundinn á matseld.is
[rating:4]